Hotel Reykjavik Centrum

Hotel Reykjavik Centrum

Hótel Reykjavík Centrum er í  hjarta borgarinnar, byggt á gömlum grunni – í bókstaflegri merkingu. Hótelið er staðsett í nýuppgerðri gamalli byggingu, Aðalstræti 16, en elsti hluti hússins var byggður árið 1764. Beggja megin við hótelið og fyrir aftan það eru nýbyggingar sem gerðar eru eftir sögufrægum reykvískum húsum, Fjalakettinum og Uppsölum.  Hótelið er í öllum þremur byggingunum og tengibyggingu og útlit hótelsins sótt til byggingarlistar Reykjavíkur upp úr aldamótunum 1900. Við byggingu hótelsins komu í ljós rústir skála frá landnámsöld og í maí 2006 var opnuð glæsileg sýningaraðstaða undir hótelinu sem Reykjavíkurborg rekur. Þar er skálarústin varðveitt og hægt er að virða hana fyrir sér og skoða sýningu henni tengdri. Við uppgröftin fundust m.a. elstu mannvistarleifar á Íslandi frá því um 870.

Á hótelinu eru 89 herbergi með öllum nútímaþægindum svo sem gervihnattasjónvarpi, síma, útvarpi, straujárni og strauborði, öryggishólfi og te og kaffisetti. Baðherbergi fylgja öllum herbergjum, ýmist búin sturtu eða baðkari. Á hótelinu eru tveir ráðstefnusalir sem rúma allt að 40 manns. Fyrsta flokks þjónusta er á hótelinu, bæði herbergja- og porterþjónusta, ásamt góðri aðstöðu fyrir gesti í viðskiptaerindum.


Aðstaða hótelsins

Móttaka opin allan sólarhringinn
Öll herbergi erureyklausherbergi
Íherbergi:síma,PayTv,SatelliteTV, straujárn ogbretti
Morgunverðarhlaðborð
24tíma herbergisþjónusta
Öryggishólf

Frítt internet WIFI
Þvottaþjónusta
Veitingahús
Setustofa ogbar
Farangursgeymsla
Lyfta
Skóburstunarvél
Upplýsingar umafþreyinguog starfsemi
Business Center
InnifalinPrentun
Fundarherbergi


Þjónusta fyrir gesti:

Móttökuþjónusta allan sólarhringinn , gjaldeyrisskipti, ljósritun og prentþjónusta. Móttakan aðstoðar einnig við pantanir á veitingastöðum og bókar gesti í skoðunarferðir. Herbergisþjónusta er á hótelinu.


Herbergja aðbúnaður

Sturta/baðkar, Sjónvarp, sími, öryggishólf, kælir, hárþurrka, straujárn og straubretti ásamt te og kaffi-setti til að fullkomna dvöl þína. Þráðlaust netsamband er gjaldfrjálst.


Opnunartímar:

Opið allt árið um kring


Komu- og brottfarartímar:

  • Innritunartími er frá 14:00
  • Útskráningartími er til kl 12:00


Dvöl með börn


Öll börn eru velkomin. Börn upp að 3ja ára aldri gista frítt í barnarúmum í herbergjum foreldranna. Allar fyrirspurnir um aukarúm fyrir born þurfa að koma fram í bókunum og eru staðfest af hótelinu. Börn upp að 12 ára aldri gista frítt ef þau deila Deluxe herbergi með fullorðnum. Svefnsófi eða aukarúm eru í boði á þessum herbergjum.


Kreditkort:


  • Visa
  • MasterCard
  • American Express

Hótelið áskilur sér rétt til að fá fyrirfram heimild á kort fyrir komu gestsins.


best price guarantee

Við tryggjum besta verðið

Reykjavík Hótel tryggja það að viðskiptavinir okkar finna bestu verðin á vefsíðum okkar www.reykjavikhotels.is,www.grand.is og www.hotelcentrum.is
Ef þið skylduð finna lægra verð með sömu skilyrðum innan við 24 klukkustundum eftir að þið staðfestið bókun, munum við jafna verðið.

Til þess að staðfesta lægra verðið biðjum við ykkur um að gefa okkur nafnið á vefsíðunni þar sem þið funduð tilboðið, ásamt skjámynd sem sýnir eftirfarandi atriði:
Nafn hótelsins
Bókunardagsetningum
Verði, gistingu, herbergistýpu, borgun og fjölda gesta.

Við munum svara innan 48 klukkustunda (á virkum dögum) og ef verðið er samþykkt munum við senda ykkur staðfestingu með nýja verðinu ásamt því að hætta viðfyrstu bókunina.
Ef þið skylduð finna ódýrara verð á hvaða annarri vefbókunarsíðu munum við jafna það verð.

Hafið einfaldlega samband við viðkomandi hótel með eftirfarandi póstföngum:
Grand Hotel Reykjavik: reservations@grand.is
Hotel Reykjavik Centrum: reservations@hotelcentrum.is
 
Skilyrði fyrir að verðtrygging sé samþykkt:
Verðið mun vera laust við skatta og gilt fyrir vefbókanir. Við tökum ekki gild umsamin verð eða verð ekki gefin á netinu.
Lágmarks verðmunur sem við samþykjum er 2€
Samanburðarverðin þurfa að passa við:
Sömu herbergjatýpu og dagsetningar á dvöl.
Sama gjaldeyri
Sama fjölda gesta
Sömu skilyrði sölu eða kynnisboðs, borgunarskilyrða og afbókunar- eða breytingargjalda
Við tökum ekki tillit til verða sem innihalda villur á þeim tíma sem bókað var né verð á kynningartilboðum.

Þessi trygging er einungis ætluð bókunum sem gerðar eru af einstaklingum.


Hafðu samband:

Centrum Hotel Reykjavik
Aðalstræti 16
101 Reykjavík, Iceland

Tel: +354-514-6000
Fax: +354-514-6030
Official web site: www.hotelcentrum.is
Send your email to: booking@hotelcentrum.is